Reykjamörk 16, 810 Hveragerði
42.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
3 herb.
61 m2
42.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1968
Brunabótamat
36.250.000
Fasteignamat
42.100.000

Eignaland kynnir í einkasölu Reykjamörk 16, 810 Hveragerði. Þriggjaherbergja íbúð á jarðhæð í grónu hverfi miðsvæðis í bænum. Eignin er skráð skv. HMS 61 fm. Sér inngangur er í eignina af hellulögðu plani.
Nánari upplýsingar hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða [email protected]
 
Nánari lýsing:

Að innan er eignin anddyri, stofa og eldhús, tvö herbergi, baðherbergi, gangur og bakinngangur með bíslag.
Komið er inn í anddyri, þaðan er innangengt í herbergi.
Eldhús og stofa eru í sameiginlegu rími með parketi á gólfi
Svefnherbergi inn á gangi með parket á gólfi.
Svefnherbergi inn af forstofu er án gólfefna (er í dag nýtt sem geymsla), parket er til á herbergið og fylgir.
Baðherbergi með flísum á gólfi, innrétting, salerni og sturtuklefi. Baðherbergið er með glugga og þvottaaðstöðu.
Við enda gangsins útgengt í bíslag með útgengi í bakgarð.
Geymsluskúr (kaldur) fylgir íbúð og stendur aftan við húsið.
Húsfélag er starfrækt í eigninni.
Eignin hentar mjög vel til gæludýrahalds.

Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson, sími 893-1984 eða [email protected]

 
- - - Vegna töluverðar sölu undanfarið get ég bætt við eignum á skrá
- - - Kem og verðmet þína eign þér að kostnaðarlausu

 

 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.