Gagnheiði 21, 800 Selfoss
32.500.000 Kr.
Atvinnuhús/ Lager - Iðnaðarhúsnæði
1 herb.
78 m2
32.500.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
2021
Brunabótamat
27.900.000
Fasteignamat
22.450.000

Eignaland og Sigurður Fannar kynna í einkasölu: Mjög snyrtilegt og vel frágengið iðnaðarbil á góðum stað í Gagnheiði á Selfossi.
Húsið er timburhús klætt að utan með lituðu járni, þak er kraftsperruþak klætt lituðu járni. Stærð bilsins er alls 78,7m2 og skiptist það í rúmgóðan sal og í enda er búið að stúka af kaffistofu/hvíldaraðstöðu og fullbúið baðherbergi.


Lofthæð er um 4 metrar, loft og veggir eru gipsklæddir og málað í hvítum lit. Epoxy er á gólfi, rafmagnsopnun er á innkeyrsluhurð sem er 3,5m x 3,5m að stærð.
Gönguhurð er á framhlið og einnig út á baklóð af kaffistofu.
Baðherbergið er fullbúið, salerni, vaskur og sturta. 
Geymsluloft er yfir kaffistofu og baðherbergi.
Bílaplan er malbikað. Húsnæðið ber ekki vsk kvöð.

Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Fannar lögg.fasteignasali í síma 897-5930 eða [email protected]

 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.