Boðavík 10, 800 Selfoss
69.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
100 m2
69.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2023
Brunabótamat
52.500.000
Fasteignamat
65.400.000

***Boðavík 10, 800 Selfoss***
 
Eignaland og Jens Magnús lgf. kynna í einkasölu Boðavík 10, 800 Selfoss. Virkilega fallegt, nýlegt endaraðhús í þessu vinsæla hverfi á Selfossi. Eignin er skráð 100,2 fm og er fjögurra herbergja. Húsið er byggt úr timbri og klætt með viðhaldsléttri klæðningu. Gluggar eru ál/tré frá Byko. Búið er að helluleggja og setja snjóbræðslu í innkeyrsluna, ásamt að komið er þriggja tunnu ruslatunnuskýli við innkeyrslu. Lóðin er þökulögð.
 
Nánari upplýsingar hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða [email protected]
 
Nánari lýsing:

Komið er inn í rúmgóða opna forstofu. Tvö rúmgóð svefnherbergi eru við innganginn, bæði með fallegum hvítum skápum. Þaðan er gegnið inn gang og inn í sameiginlegt rími með eldhúsi, borðstofu og stofu. Eldhúsið er með hvítri innréttingu með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, helluboðrið er með viftu í. Inn af alrími er gengið inn í hjónaherbergið og er það með stórum hvítum fataskáp. Baðherbergið er snyrtilegt með flísum á gólfi og á veggjum að hluta, rúmgóðri með sturtu með dökku sturtugleri og snyrtilegri innréttingu. Þvottahús er með hvítir innréttingu með vask og plássi fyrir þvottavél og þurrkara.
- Gólfefni eru vandað harðparket, nema þvottahúsi og baðherbergi þar eru flísar.
- Innihurðir eru innfeldar hvítar.

Boðavík 10 er virkilega fallega skipulagt og frágengið endaraðhús.
 
Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson, sími 893-1984 eða [email protected]

 
***Vegna mikillar sölu undanfarið get ég bætt við eignum á skrá***
***Kem og verðmet þína eign þér að kostnaðarlausu***
 
 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.